Fréttir
Ljóðstafur Jóns úr Vör
<p>- skilafrestur 15. desember - 400.000- kr. í verðlaun</p>

“Ljóðstafur Jóns úr Vör”Ljóðasamkeppni  Lista og menningarráð Kópavogs efnir til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu “Ljóðstafur Jóns úr Vör”.Veitt verða ein verðlaun, kr. 400.000.- og mun verðlaunaskáldið fá til varðveislu í eitt ár göngustaf sem á verður festur skjöldur með nafni þess.3ja manna dómnefnd mun velja úr ljóðum sem berast.Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina. Þau mega ekki hafa birst áður. Ljóðum skal skilað með dulnefni og skal nafn, heimili og sími skáldsins fylgja með í lokuðu umslagi auðkennt með sama dulnefni. Aðeins má senda eitt ljóð í hverju umslagi og þess vænst að ljóðunum sé skilað á pappírsstærðinni A-4 eða A-5.Skilafrestur er til 15. desember 2005 og utanáskriftin er: “Ljóðstafur Jóns úr Vör”Tómstunda- og menningarsvið Kópavogsb.t. Sigurbjargar H. Hauksdóttur,Fannborg 2, 200 Kópavogur


ATHUGASEMD FRÁ LJÓÐ.IS: Ljóð sem birst hafa á ljóð.is eru því miður ekki gjaldgeng í þessa keppni, vegna strangra reglna um fyrri birtingar þeirra ljóða sem berast inn. Þetta er vitanlega gert til að gulltryggja nafnleynd allra höfunda.