Fréttir
Skáldaspírukvöld 5. desember
Hallberg Hallmundsson og Ingunn Snædal

Þriðjudaginn 5.des, fagnar Skáldaspíran 75. upplestrarkvöldinu sínu, að vanda íIðu, Lækjargötu, kl. 20.00.   Skáld kvöldsins að þessu sinni, eru þau: Hallberg Hallmundsson, ljóðskáld ogþýðandi, en Árni Blandon mun lesa fyrir hann upp úr verkum skáldsins, þ.á.m upp úrnýrri ljóðabók sinni, Þá og þegar, sem og úr öðrum verkum sínum. Þá mun Ingunn Snædal lesa upp úr verkum sínum, m.a. nýjustu ljóðabók sinni,Guðlausir menn, en fyrir hana hlaut Ingunn bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.   Aðgangur er ókeypis og mega gestir hafa með sér veitingar niður í bókarými ofan afkaffihúsinu á annarri hæðinni. Skipuleggjandi kvöldsins er skáldaspíran Benedikt S.Lafleur... Benedikt S. Lafleur lafleur@simnet.isHolmaslod 4,101 Reykjavik vs: 55 282 55 / gsm: 659-3313www.lafleurpublishing.com www.benediktlafleur.com www.numeralogia.com www.ermasund.is