Fréttir
Nykurskáld á Menningarnótt
- Austurvelli kl. 22-23, laugardaginn 18. ágúst

Útgáfu- og skáldahópurinn Nykur stendur fyrir þéttri og spennandi ljóðadagskrá á Austurvelli kl. 22-23 á Menningarnótt, laugardaginn 18. ágúst.   Eftirfarandi skáld lesa úr ljóðum sínum:   Andri Snær Magnason Davíð Stefánsson Emil Hjörvar Petersen Kári Páll Óskarsson Toshiki Toma Sigurlín Bjarney Gísladóttir Arngrímur Vídalín Andri Örn Erlingsson Nína Salvarar   Þetta er þrælgóð blanda af gömlum og nýjum skáldum - Andri Snær og Davíð hafa gefið út allnokkrar ljóðabækur, Emil, Kári, Arngrímur og Sigurlín Bjarney hafa öll nýverið gefið út sín fyrstu verk, og Toshiki Toma, prestur innflytjenda á Íslandi, mun nú í haust gefa út fyrstu ljóðabók sína, Fimmta árstíðin. Andri Örn og Nína eru svo nýjustu og ferskustu meðlimirnir í Nykri.   Allir velkomnir, aðgangur að sjálfsögðu ókeypis - kl. 22-23 á Austurvelli - rétt fyrir flugeldasýninguna.