Fréttir
Ljóðakvöld í Populus Tremula 11. október
- Gunnar M.G. gefur út sína fyrstu bók

Fimmtudaginn 11. október kl. 21:00 verður verður haldið bókmenntakvöld í Populus tremula í Listagilinu á Akureyri. Þar mun Gunnar M. G. kynna og flytja eigin ljóð. Gunnar er í flokki yngstu skálda, aðeins 23ja ára, og kynnir hér sína fyrstu ljóðabók, Skimað út, sem Populus tremula gefur út þetta sama kvöld. Bókin verður fáanleg á staðnum.Aðgangur ókeypis.