Fréttir
Ertu stafsetningarpúki og ástmaður ljóða?
- við þurfum aðstoð við menningararfinn

Ein víddin í starfi ljóð.is er að miðla ljóðum gömlu meistaranna til nýrra lesenda. Það höfum við gert með því að hafa gömul ljóð sem ljóð dagsins í bland við ljóð notenda.Það er alltaf þörf fyrir nákvæma fingur - láttu okkur endilega vita á info@ljod.is ef þú gætir hugsað þér að slá inn gömlum meistaraljóðum. Einu skilyrðinu eru þín eigin nákvæmnisvinnubrögð, því vitanlega viljum við helst fara rétt með menningararfinn.