Fréttir
Ný ljóðabók eftir Lubba klettaskáld
- Kvæðahver

Út er komin ljóðabókin Kvæðahver eftir Lubba klettaskáld og er það fjórða bókin hans en sú fyrsta í 5 ár. Það er Lafleur Productions sem sér um útgáfu.Lubbi klettaskáld er fjölhæft skáld. Í þessari bók gætir einmitt ýmissa grasa. Lubbi er pólitískur, rómantískur, kaldhæðinn, grínaktugur, orðheppinn og leikinn á tungumálið. Lubbi er fyndinn, sár og bitur, dregur sjálfan sig og aðra sundur og saman í háði. Hann er sumsé fullur andstæðna. Þess vegna er þetta einlæg bók.Áhugasamir geta nálgast bókina í öllum helstu bókabúðum á landinu eða haft samband við Lubba sjálfan en tölvupósthólf hans er bjg8@hi.is.