Fréttir
Ljóðstafur Jóns úr Vör - ljóðasamkeppni
- frestur til 1. desember

TIL NOTENDA LJÓÐ.IS: Ljóðin í þessa keppni mega ekki hafa birst opinberlega á ljóð.is!Lista- og menningarráð Kópavogs efnir til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör.Veitt verða vegleg verðlaun og mun verðlaunaskáldið fá til varðveislu í eitt ár göngustaf sem á verður festur skjöldur með nafni þess. Þriggja manna dómnefnd mun velja úr ljóðum sem berast. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina. Þau mega ekki hafa birst áður. Ljóðum skal skilað með dulnefni og skal nafn, heimili og sími skáldsins fylgja með í lokuðu umslagi auðkennt með sama dulnefni. Aðeins má senda eitt ljóð í hverju umslagi og þess vænst að ljóðunum sé skilað á pappírsstærðinni A-4 eða A-5.Skilafrestur er til 1. desember 2008  og utanáskriftin er: Ljóðstafur Jóns úr Vör Tómstunda- og menningarsvið Kópavogs Fannborg 2, 200 Kópavogur Afhending verðlaunanna fer fram á afmælisdegi Jóns úr Vör föstudagskvöldið 21. janúar 2009. Þátttöku ljóð má sækja á ofangreint heimilisfang fyrir 1. febrúar; eftir það verður þeim eytt.