Fréttir
Bragaþing 2009
Landsmót hagyrðinga

Landsmót hagyrðinga verður haldið í Hótel Laka, Efrivík í Landbroti laugardaginn 29. ágúst og hefst kl. 20,00. Skemmtun fyrir alla sem ánægju hafa af kveðskap, hvort sem þeir yrkja sjálfir eða ekki en þeir sem geta eru beðnir að glíma við yrkisefnin: Höfuðdagur, franskir strandmenn og jötuninn stendur með járnstaf í hendi. Miðaverð á mótið, kvöldverðarhlaðborð innifalið, kr. 4900. Gisting kr. 6000 á mann í tveggja manna herbergi, morgunverður innifalinn. Pantanir á aðgöngumiðum og gistingu hjá Hótel Laka í síma 4874694. Gistingu þarf að panta í síðasta lagi 16. ágúst.