Fréttir
Ljóðstafur Jóns úr Vör
<P>- skilafrestur 22. nóvember - verðlaunafé kr. 300.000-</P>

Ljóðstafur Jóns úr Vör - Ljóðasamkeppni   Lista- og menningarráð Kópavogs efnir til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör.   Veitt verða ein verðlaun, kr. 300.000.- og mun verðlaunaskáldið fá til varðveislu í eitt ár göngustaf sem á verður festur skjöldur með nafni þess. Þriggja manna dómnefnd mun velja úr ljóðum sem berast. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina. Þau mega ekki hafa birst áður. Ljóðum skal skilað með dulnefni og skal nafn, heimili og sími skáldsins fylgja með í lokuðu umslagi auðkennt með sama dulnefni. Aðeins má senda eitt ljóð í hverju umslagi og þess vænst að ljóðunum sé skilað á pappírsstærðinni A-4 eða A-5.   Skilafrestur er til 22. nóvember 2004 og utanáskriftin er:   Ljóðstafur Jóns úr Vör Tómstunda- og menningarsvið Kópavogs b.t. Sigurbjargar H. Hauksdóttur Fannborg 2, 200 Kópavogur   Afhending verðlaunanna fer fram á afmælisdegi Jóns úr Vör föstudagskvöldið 21. janúar 2005.   Þátttöku ljóð má sækja á ofangreint heimilisfang fyrir 1. febrúar; eftir það verður þeim eytt.