Heimslystarvísur
Vakrir hestar, vígðir prestar, vænar píkur,
þetta flestallt víða víkur,
varan besta um landið strýkur.

Hesti að ríða um hauðrið víða heims er kæti,
presti að hlýða mesta mæti,
meyjunnar blíða er eftirlæti.

Hest um grundir hafa menn fundið helst að sinni,
prest, ef stundar stand og inni
og stúlkuna undir rekkvoðinni.

Fjögur hundruð hestur kostar og herleg tygi,
þrifinn prestur þrisvar níu,
þorngrund besta áttatíu.

Eigðu, prestur, ungan hest og ágætt kvendi,
þú hefur flestallt þá í hendi
það hið besta hér innlendis.  
Benedikt Jónsson frá Bjarnanesi
1664 - 1744
hauður: land

stand: staða, stétt
inni: hús, heimili

þorngrund: kona


Ljóð eftir Benedikt Jónsson

Heimslystarvísur