Skálateigssystur
Ekki hafa þær systur námsvistarverki.
Vísindi og lærdómur draga þær til sín.
Þær eru nú ættarljóminn stóri og sterki.
Stunda vel námið og hugsa oft til mín.
Býr Marta í Englandsborginni stóru
og bablar víst liðugt á alþjóðamálum.
Hún og Magga systir í heimsreisu fóru.
Heilar komu aftur á líkama og sálum.
Mennta sig nú báðar í Mastersgráðum.
Munu fáir vinir þeim systrunum gleyma.
Þó er ég stoltastur af stelpunum báðum.
Stundum fá sumir nóg af því heima.
Ásgeir kemur hér líka eilítið við sögu.
Ástina hún Magga tendraði í honum.
Megið þið njóta ykkar handanna högu
og hugsjónir rætast að björtustu vonum.
Vísindi og lærdómur draga þær til sín.
Þær eru nú ættarljóminn stóri og sterki.
Stunda vel námið og hugsa oft til mín.
Býr Marta í Englandsborginni stóru
og bablar víst liðugt á alþjóðamálum.
Hún og Magga systir í heimsreisu fóru.
Heilar komu aftur á líkama og sálum.
Mennta sig nú báðar í Mastersgráðum.
Munu fáir vinir þeim systrunum gleyma.
Þó er ég stoltastur af stelpunum báðum.
Stundum fá sumir nóg af því heima.
Ásgeir kemur hér líka eilítið við sögu.
Ástina hún Magga tendraði í honum.
Megið þið njóta ykkar handanna högu
og hugsjónir rætast að björtustu vonum.
Þann 4. 11. 2oo2 byrjaði ég tölvutækni með kveðju til dætra minna í háskóla.