Fjölþýðir gæðingar!
Fjölþýðir gæðingar fundust hér áður.
Farinn að eldast ég man þessa daga.
Mörg kvöldin fögur ég reið út allsgáður.
Ævintýr mín eru lífsreynslusaga.
“Við erum rassfastir feðgar” sagði faðir minn.
Á barnsaldrinum báðir skriðum,
er bættist aldur þá við riðum.
Líkasttil endar hér bændatíð bara.
Býsna er það orðin drjúg þjóðarsaga.
Ríkisstjórnir ruplandi koma og fara,
reyna að eyða landið nætur sem daga.
Farinn að eldast ég man þessa daga.
Mörg kvöldin fögur ég reið út allsgáður.
Ævintýr mín eru lífsreynslusaga.
“Við erum rassfastir feðgar” sagði faðir minn.
Á barnsaldrinum báðir skriðum,
er bættist aldur þá við riðum.
Líkasttil endar hér bændatíð bara.
Býsna er það orðin drjúg þjóðarsaga.
Ríkisstjórnir ruplandi koma og fara,
reyna að eyða landið nætur sem daga.
Ort 3.10.2002 og sett með grein í Austurgluggann.