Óbótamenn!!!
Óbótamenn geta hreykt sér hátt,
hvílíka brandaraeiða þeir sóru!!!
Átt hefur þeirra hugurinn smátt,
hönd getur ritað orðin þau stóru!
Grey hér bisa líknarlúnir
af leigumorðum ærurúnir,
gamna sér við grannans frú!
Spóka sig í fínum fötum,
fara sloppar vel á rötum,
kenna sig við kristna trú!!!
Hafa völd á hórum, aurar!!!
Hópast peninganna maurar
og henda kátt sitt hórarí!!!
Morðingjar og mannorðsþjófar
mega að sönnu kallast bófar!
Sokknir djúpt í svínarí!!!
Murka börn úr móðurkviði!!
Mergjuðu fylkja áróðursliði,
til geldinga gráðugir hreint!
Eiðana sína ekki muna!!!!!!
Allt fyrir Mammonstilveruna,
troðið niður ljóst og leynt!!!
“Grimmur er guðlaus maður!”
Gleypir mútur trúverknaður!!
Líknardráparinn handahraður
hugsar ekki um börnin smá!!
Fjölskyldunum líka fargar sá!
Bófalið sjaldan bætt hefur raun,
bíræfnir leika svo fáum er rótt!!
Enginn fær sviða í annarra kaun
einhverra valdandi gerða um nótt!
Dæma sig verkin djöflanna sjálfra!!!
Draga sér meira en nokkur frá segi!!
Öll mín skrif gætu ei hlutast til hálfra
hryðjuverkanna sem ske björtum degi!
Ekki vil ég draga neitt í dylgjur,
að dóma eigi þrælmenni að fá!
“Gjöld eru glæpanna fylgjur!!!”
Gjaldi því hver betur sem má!
Brjálæði stjórnvalda tekur sinn toll
tekst þeim án vafa landið að eyða!!!
Gamlir og sjúkir á hvíslast með hroll:
“Hvenær skyldi okkur farið að deyða?”
hvílíka brandaraeiða þeir sóru!!!
Átt hefur þeirra hugurinn smátt,
hönd getur ritað orðin þau stóru!
Grey hér bisa líknarlúnir
af leigumorðum ærurúnir,
gamna sér við grannans frú!
Spóka sig í fínum fötum,
fara sloppar vel á rötum,
kenna sig við kristna trú!!!
Hafa völd á hórum, aurar!!!
Hópast peninganna maurar
og henda kátt sitt hórarí!!!
Morðingjar og mannorðsþjófar
mega að sönnu kallast bófar!
Sokknir djúpt í svínarí!!!
Murka börn úr móðurkviði!!
Mergjuðu fylkja áróðursliði,
til geldinga gráðugir hreint!
Eiðana sína ekki muna!!!!!!
Allt fyrir Mammonstilveruna,
troðið niður ljóst og leynt!!!
“Grimmur er guðlaus maður!”
Gleypir mútur trúverknaður!!
Líknardráparinn handahraður
hugsar ekki um börnin smá!!
Fjölskyldunum líka fargar sá!
Bófalið sjaldan bætt hefur raun,
bíræfnir leika svo fáum er rótt!!
Enginn fær sviða í annarra kaun
einhverra valdandi gerða um nótt!
Dæma sig verkin djöflanna sjálfra!!!
Draga sér meira en nokkur frá segi!!
Öll mín skrif gætu ei hlutast til hálfra
hryðjuverkanna sem ske björtum degi!
Ekki vil ég draga neitt í dylgjur,
að dóma eigi þrælmenni að fá!
“Gjöld eru glæpanna fylgjur!!!”
Gjaldi því hver betur sem má!
Brjálæði stjórnvalda tekur sinn toll
tekst þeim án vafa landið að eyða!!!
Gamlir og sjúkir á hvíslast með hroll:
“Hvenær skyldi okkur farið að deyða?”
Anno 2002