Þokki Þokkason.
Mikils er vænst af Þokka Þokkasyni,
Þórður, Siggi og Ingólfur komnir eru í feitt.
Leiða vildum hryssu af Kjarnholtakyni
svo komið gæti afkvæmi er teldist vera reitt.
Fá vildum örlítil fimmtíu þúsund
fyrir að gefa honum Þokka einn sjens.
Því varð nú dálítið strembin sú stund
er strákarnir slógu því öllu í glens.
Heyrninni minni ég tæplega trúði
en trúlega Ingólfur hafði það vald.
Móttilboð gerði og mælti með snúði:
"Munum frekar leggja til urðunargjald!"
Þórður, Siggi og Ingólfur komnir eru í feitt.
Leiða vildum hryssu af Kjarnholtakyni
svo komið gæti afkvæmi er teldist vera reitt.
Fá vildum örlítil fimmtíu þúsund
fyrir að gefa honum Þokka einn sjens.
Því varð nú dálítið strembin sú stund
er strákarnir slógu því öllu í glens.
Heyrninni minni ég tæplega trúði
en trúlega Ingólfur hafði það vald.
Móttilboð gerði og mælti með snúði:
"Munum frekar leggja til urðunargjald!"
Þokki 3ja v. graðfoli var væntanlegur í fjörðinn.