Hestakaupasaga Þórðar!
Hann vildi farga stóðinu og fylfullri meri
fyrir þann rauða sem um veginn gekk!
Ingólfur sagði: "Ég kaupin ekki geri,
en auðvitað skil ég þinn góða smekk!"
Grunar menn að Þórður hafi verið í víni
vonlaus um það lán að eignast góðan hest!
Enginn þarf að halda að slíkt sé gert í gríni!
En gefa Ólgu mína í kaupbæti tel ég reyndar best!
“Ég hef alltaf staðið mitt splitt,
þa´ þí´ir ekkert anna´!"
"Þitt var mitt og mitt var þitt,"
má þetta dæmið sanna!
fyrir þann rauða sem um veginn gekk!
Ingólfur sagði: "Ég kaupin ekki geri,
en auðvitað skil ég þinn góða smekk!"
Grunar menn að Þórður hafi verið í víni
vonlaus um það lán að eignast góðan hest!
Enginn þarf að halda að slíkt sé gert í gríni!
En gefa Ólgu mína í kaupbæti tel ég reyndar best!
“Ég hef alltaf staðið mitt splitt,
þa´ þí´ir ekkert anna´!"
"Þitt var mitt og mitt var þitt,"
má þetta dæmið sanna!
Það er talið að bindindismaðurinn Þórður á Skorrastað hljóti að hafa verið drukkinn, er hann bauð þessi hestakaup. En mér þótti hann sýna mér traust að bjóða 1. verðlauna hryssuna mína Ólgu í kaupbæti. Þá datt mér í hug orðatiltæki Fidda vinar míns á Egilsstöðum sem er: “Ég hef alltaf staðið mitt splitt, þa´ þí´ir ekkert anna´!"