Bölvaður hamsturinn
Ég var afbrýðisamur í ástarþríhyrningi!
Ég elskaði stúlkuna mína,
stúlkan mín elskaði hamsturinn,
hamsturinn elskaði ástina mína,
ég hataði hamsturinn hennar
og hamsturinn hataði mig.

Ég var afbrýðisamur og mig vantaði athygli!
Ég talaði við stúlkuna mína,
stúlkan mín talaði við hamsturinn,
hamsturinn knúsaði ástina mína,
ég bölvaði hamstrinum hennar,
og hamsturinn beit mig.

Ég var afbrýðisamur og mig vantaði snertingu!
Ég strauk stúlkunni minni,
stúlkan mín strauk hamstrinum,
hamsturinn trítlaði á ástinni minni,
ég kleip hamsturinn hennar
og hamsturinn klóraði mig.

Ég var afbrýðisamur og mig vantaði gleði!
Ég brosti til stúlkunnar minnar,
stúlkan mín gantaðist við hamsturinn,
hamsturinn kitlaði ástina mína,
ég öskraði á hamsturinn hennar
og hamsturinn kúkaði á mig.

Ég var afbrýðisamur, þegar hamsturinn dó!
Ég flissaði mót stúlkunni minni,
stúlkan mín grét yfir hamstrinum,
hamsturinn lá hjá ástinni minni,
ég öfundaði hamstrinum hennar
og hamsturinn glotti til mín.

Ég var afbrýðisamur og er það enn!
Ég er ekki hjá stúlkunni minni,
stúlkan mín grætur hamsturinn,
hamsturinn stal ástinni minni,
ég fyrirlít hamstrinum hennar
því hamsturinn sigraði mig.
 
Steinn Fjallanna
1965 - ...


Ljóð eftir Stein Fjallanna

Bölvaður hamsturinn
Garðurinn þinn