sú sem læðist
svona amatörtíkur eins og þú
eiga ekkert í mig

þú situr og segir
mér frá hefndinni
sársaukanum
sem þú ætlar að valda
hefndinni
og þú grætur

en þú veist ekki
bakvið hlustandann góða
skilningsrík augun
brosið blíða
er ég

tík allra tíka

og ég
ætla að dansa á ösku þinni
þegar dagar hefndarinnar koma
ég tala ekki
ég geri
og græt aldrei

og þú munt sjá
þegar dagar hefndarinnar koma
að þú hefðir átt að hlusta sjálf
því ofar öllu verð ég
hætt að hlusta
græt ekki
hefni
hefni
og hlæ

 
frenja fláráða
1975 - ...


Ljóð eftir frenju fláráðu

Ignorance is the ultimate blizz
sú sem læðist
ég elskaði þig fíflið þitt
Well, you say, what do you want ?