VANMÁTTUG
bý mig undir að læsa klónum í þig
strýk þér varlega um vangann

bý mig undir að hvæsa
brosi fallega til þín

bý mig undir að stökkva burt
leggst hjá þér

bý mig undir að særa þig eins og þú hefur sært mig
býð þér hinn vangann

bý mig undir að rífa úr þér hjartað
gef þér mitt
 
km
1984 - ...


Ljóð eftir km

DIMMBLÁ
VANMÁTTUG