Komdu fljótt
Hvar ertu nú
spyr ég skuggann,
hvar ert þú sá
Sem bankaðir á gluggann?

Ég þrái þig
af öllu hjarta.
Komdu til mín
með brosið bjarta.

Fagri engill
með hvíta vængi,
ekki láta mig
bíða lengi.

Ef ég eignast
þína ást,
mun ég ekki
lengur þjást.

Ég vil ei gráta
aðra nótt.
Svo ef þú getur
komdu fljótt.
 
opal
1989 - ...


Ljóð eftir opal

Komdu fljótt