Strá í morgunmat
Ég arkaði út
til þess að sjá betur
inn til þín.

Þar var fallegt
því þú skildir
mín húsakynni.

Ég fór aftur heim
til þess að
rifja upp og sjá.

Svo liðu dagarnir
eins og stórt og
hræðilegt snjóflóð.

Það var ekki
lengur sól heldur ást
við vorum inni saman.


 
Nanna
1987 - ...


Ljóð eftir Nönnu

Strá í morgunmat