Leiksvið Guðs
Hvað er fólk?
Er það strengjabrúður Guðs sem hann stjórnar eins og hann vill?
Eða eru það leikarar í leikriti og jörðin
eitt stórt leiksvið?
Endalaust leikrit
Alltaf sama leikritið
En allt í einu springur leiksviðið...
hvað er þá eftir?
Ekkert..
nema fáeinar leifar af sviðinu,
leiksviðinu sem ekkert leikrit,
ekkert leikrit verður leikið framar á.  
Þórey Inga Helgadóttir
1980 - ...


Ljóð eftir Þóreyju Ingu Helgadóttur

Leiksvið Guðs
Stundarglasið
Það er