Miklihvellur
Hvelfingar myljast og hrynja yfir þig
hrævareldar kvikna og verða að báli.
Tíminn brestur og teygir sig
og tætist í alsherjar sýndar táli.
Rúmmið riðlast og sundur skilur
seglar brotna í örsmáar eindir.
Orkan flæðir magnast og mylur
Miklihvellurinn aflinu beindir.
Að baki er sú brennandi gáta
er byrgir oss sýn og öðrum lýtur.
Að endingu verður eitthvað undan að láta
óvissan ræðst er ævinni líkur.
hrævareldar kvikna og verða að báli.
Tíminn brestur og teygir sig
og tætist í alsherjar sýndar táli.
Rúmmið riðlast og sundur skilur
seglar brotna í örsmáar eindir.
Orkan flæðir magnast og mylur
Miklihvellurinn aflinu beindir.
Að baki er sú brennandi gáta
er byrgir oss sýn og öðrum lýtur.
Að endingu verður eitthvað undan að láta
óvissan ræðst er ævinni líkur.