Vextir
Ég settist inn í bílinn sæll á leið
og sigurviss burt frá kauphöllinni.
Á besta stað í borgarhluta beið
breiðtjaldssjónvarp í stofunni minni.
Þegar ég kveikti á kvöldtímafrétt
klóraði ég mér á bak við eyra.
Og sá þar sagt frá rollunum í rétt
rúningu dilka og eitthvað fleira.
Og mér fannst það mikil furðulegheit
að fjalla ekkert um vaxtargróða.
Og aumkaðist yfir annarri leit
en aurum og gullinu góða.
Ég er sigurviss og á sældarlíf
svo fer ég út og fæ mér að borða.
Er alltaf svangur og allt í mig ríf
með útþanda vömb og vetrarforða.
Er ríkur og ræni menn eins og þig
og reyki mína vindla með stæl.
Þótt offitan sé jú að drepa mig
ánægður er ég og þoli ekkert væl.
og sigurviss burt frá kauphöllinni.
Á besta stað í borgarhluta beið
breiðtjaldssjónvarp í stofunni minni.
Þegar ég kveikti á kvöldtímafrétt
klóraði ég mér á bak við eyra.
Og sá þar sagt frá rollunum í rétt
rúningu dilka og eitthvað fleira.
Og mér fannst það mikil furðulegheit
að fjalla ekkert um vaxtargróða.
Og aumkaðist yfir annarri leit
en aurum og gullinu góða.
Ég er sigurviss og á sældarlíf
svo fer ég út og fæ mér að borða.
Er alltaf svangur og allt í mig ríf
með útþanda vömb og vetrarforða.
Er ríkur og ræni menn eins og þig
og reyki mína vindla með stæl.
Þótt offitan sé jú að drepa mig
ánægður er ég og þoli ekkert væl.