Smávinir.
Enn ég feta gróna götu
og gömlu hliði loka.
Ungur sat ég einn með fötu
eitthvað við að moka.
Stóð hann oft við smíðar þá
með styrkum höndum sínum.
Endurminning æsku frá
er enn í huga mínum.
Brosið kemur blítt til mín
frá barnæskunni minni.
Gullið best var gæskan þín
er gréri í huga inni.
og gömlu hliði loka.
Ungur sat ég einn með fötu
eitthvað við að moka.
Stóð hann oft við smíðar þá
með styrkum höndum sínum.
Endurminning æsku frá
er enn í huga mínum.
Brosið kemur blítt til mín
frá barnæskunni minni.
Gullið best var gæskan þín
er gréri í huga inni.