Blautir jólaskór
þegar jólin nálgast
sjást skór í glugga

í dag
fékk ég mandarínur,
soðnar
ég hafði gleymt skónum á ofninum
setti þá ekki í gluggann

hvað ef jóli hefði ætlað að gefa mér súkkulaði í skóinn?

gott að hann á einhverja skynsemi eftir

ekki veitir af
þegar jólin nálgast  
Rannveig
1970 - ...


Ljóð eftir Rannveigu

Þú - ég - við
Blautir jólaskór