Einkenni sjúkdómsins
Verð að...
Mér finnst sem allir,
horfi,
dæmi,
séu að hlæja.
Ég fyllist alltaf
kvíða,
ótta,
hugsunum um flótta.
En ég kemst aldrei langt
því hugsanir mínar
ná mér alltaf
á kvöldin.
Hvað heldur fólk?
Hvað gerði ég rangt?
Af hverju líður mér svona?
...komast burt
Mér finnst sem allir,
horfi,
dæmi,
séu að hlæja.
Ég fyllist alltaf
kvíða,
ótta,
hugsunum um flótta.
En ég kemst aldrei langt
því hugsanir mínar
ná mér alltaf
á kvöldin.
Hvað heldur fólk?
Hvað gerði ég rangt?
Af hverju líður mér svona?
...komast burt
Mér finnst þetta vera veik tilraun hjá mér til þess að lýsa félagsfælni. Það er ekki hægt að lýsa þessum kvilla, það þarf að upplifa hann.
28.05.02
28.05.02