Allt í bærilegu gengi 2006
Hér má segja að allt sé nú í bærilegu gengi
þó ég hafi reyndar ekki séð niðr´á mig lengi,
en ég stefni þó að því markvisst og ótrauður
og vonast til að ná því áður en ég verð dauður.
Ég er þó yfir þeim ráðleggingum dálítið stúrinn
að ég drífi mig nú til að leggja í danska kúrinn
en konan segir mig stefna beint í hjólastólinn
ef ég taki mig ekki á til að sjá í tólin fyrir jólin.

Systir mín blessuð sendi mér mail og bauðst til að senda mér uppskriftina að Danska megrunarkúrnum og ég setti þetta saman og sendi henni í staðin.