Biðstofa
Enn sit ég einn við borð
og opna mitt hlið.
Sorg kemur inn með orð
og andvarpar þreytt eftir bið.
Synd er systir mín
og siglir um höf.
Föst við festar með land í sýn
og færir mér stundum gjöf.
Ég Þekki Hades og Karon
er hyllingarsveinn.
Ég þekkti Jesú Jósefsson
og Júdas er kyssti hann einn.
Gleði er grátur minn
þér gjöful og hlý.
Þar get ég sofið um sinn
og sótt í mig kjarkinn á ný.
Ég er eldfim og brenn
ástleitin en köld.
Þið sjáið mig senn
ég sit og bíð hér í kvöld.
og opna mitt hlið.
Sorg kemur inn með orð
og andvarpar þreytt eftir bið.
Synd er systir mín
og siglir um höf.
Föst við festar með land í sýn
og færir mér stundum gjöf.
Ég Þekki Hades og Karon
er hyllingarsveinn.
Ég þekkti Jesú Jósefsson
og Júdas er kyssti hann einn.
Gleði er grátur minn
þér gjöful og hlý.
Þar get ég sofið um sinn
og sótt í mig kjarkinn á ný.
Ég er eldfim og brenn
ástleitin en köld.
Þið sjáið mig senn
ég sit og bíð hér í kvöld.