Sólrisufjöll
Í skjóli við Sólrisufjöll
frá stríðum norðan vindi.
Er við rætur risin höll
þar ræður ásinn blindi.
Heyrast þaðan hlátrasköll
á kyrrum vetrarkvöldum.
Því æsir eiga skáldin snjöll
og skála við ræðuhöldum.
Þó aldrei hafi augun séð
er ysta myrkur fjarri.
Því fegurð hans er falið veð
og friður honum nærri.
Hann vill sátt og geð til góðs
og grið um liljuengi.
Því sverðin höggva sárt til blóðs
og sporin hræða lengi.
En ærulaus með illan streng
andi um nóttu líður.
Háskagripur með fallinn feng
er fast við ósinn bíður.
Í hallarmold við virkis var
vex blóm á þurrum greini.
En hljóður skuggi hreyfist þar
og heldur á mistilteini.
frá stríðum norðan vindi.
Er við rætur risin höll
þar ræður ásinn blindi.
Heyrast þaðan hlátrasköll
á kyrrum vetrarkvöldum.
Því æsir eiga skáldin snjöll
og skála við ræðuhöldum.
Þó aldrei hafi augun séð
er ysta myrkur fjarri.
Því fegurð hans er falið veð
og friður honum nærri.
Hann vill sátt og geð til góðs
og grið um liljuengi.
Því sverðin höggva sárt til blóðs
og sporin hræða lengi.
En ærulaus með illan streng
andi um nóttu líður.
Háskagripur með fallinn feng
er fast við ósinn bíður.
Í hallarmold við virkis var
vex blóm á þurrum greini.
En hljóður skuggi hreyfist þar
og heldur á mistilteini.