Hrjáður heimur
Sá er ekki beysinn er öllum líkar við
og alltaf er talhlýðinn við náungann.
Auðvitað getur sá engum veitt lið
og aldrei verið trúr, við nokkurn mann.
Heimurinn er hrjáður af ýmiskonar plotti.
Hafa ríkisskálkarnir þar ekkert verra.
Aumingjar eru níddir með illskulegu glotti.
Allir stjórna þannig fyrir guð sinn og herra.
Fellur ryð á sannleikann ef sópara vantar.
Sækja auð og féfletta soralegir bófar.
Sjálfstæðismenn eru svíðingafantar.
Siðlausir með öllu og margdæmdir þjófar.

Anno 2006