Svört Tár
Svört tár í nokkur ár,
hjartað svíður, því miður,
ískalt blóð, sorgarflóð,
sálin dökknar, vöknar, slökknar,
skrambans sorg, myrkrarborg
af kvíða, fingur svíða,
tíminn líður, dauðinn bíður
ekki lengi, kolsvart engi
stend ég á, lítil þrá
berst um í mér, í sjálfu sér
allt of mikið, verður svikið
út að lokum, mínum dropum
slotnar seint, það er leynt
í mínu hjarta, enga bjarta
von að sjá, ég mun fá
nóg af árum með svörtum tárum.  
Ari Þór
1985 - ...
Allir eiga sínar upp og niður sveiflur..


Ljóð eftir Ara Þór

Svört Tár
Skæri
Þoli ekki