Feimin ást
Ég sá þig og hreifst um leið.
Þú hreifst líka, ég bara vissi það ekki.
Bæði feimin.

Ekkert heyrðist eða sást.
Stóra tímaglasinu var snúið þrisvar.

Ég sá þig þá og var enn hrifin.
Þú varst það líka, ég var bara lengi að uppgötva það.

Litla tímaglasinu var snúið þrisvar.

Svo gerðist það.
Það varði.

Sálin tók kollhnís.
Þetta var eitthvað öðruvísi en gerðist vanalega.

En það endaði svo.
Hefði getað orðið.
Feimin mistök.

Ekkert.

Örvænting.
Ég ætla að reyna að ná til þín.
Ákveðni.

Ekkert.

Von, þrá og eftirvænting.
Þráhyggja, eymd og vanlíðan.

Þú opnaðir gat.
Gleymdir að fylla upp í það.

Ég er svampur í vatni með saltbragði.
 
óskabarn
1986 - ...


Ljóð eftir óskabarnið

Hjálp
Feimin ást