New York.
Í ræsum og rennum er mafíublóð
rís í huga niðdimma nótt.
Á kveldin kysstu börnin góð
að krossi lúta,heima er rótt.
Þeir skríða til skrifta með lýgi á vör
og skyrpa til hans er þungan ber.
Hjá þeim ræður sorinn og fláttskapur för
ferð til vítis er ókeypis hér.
Neðst við Ground Zero er grafarþögn enn
grípur hugann mynd er ég finn.
Ég greini móður og gullin hans tvenn
greyparnar spennir með tár á kinn.
Er sólin kvaddi ég skuggana bað
siglið burt með vonir í var.
Seiðmögn og hélog strax finnið stað
ég skil það vel og bið um far.
rís í huga niðdimma nótt.
Á kveldin kysstu börnin góð
að krossi lúta,heima er rótt.
Þeir skríða til skrifta með lýgi á vör
og skyrpa til hans er þungan ber.
Hjá þeim ræður sorinn og fláttskapur för
ferð til vítis er ókeypis hér.
Neðst við Ground Zero er grafarþögn enn
grípur hugann mynd er ég finn.
Ég greini móður og gullin hans tvenn
greyparnar spennir með tár á kinn.
Er sólin kvaddi ég skuggana bað
siglið burt með vonir í var.
Seiðmögn og hélog strax finnið stað
ég skil það vel og bið um far.