Ást er bara majónes sem festist í hjartaæðunum
Mér er illt í hjartanu.
Hjartanu sem sló í takt við þig.

Ég fæ sársaukasting í hjartað sem leiðir um allan líkamann þegar ég hugsa um þig...
og mig svimar svimar...

Kannski er hjarta mitt að bresta.
Kannski er ég að deyja.

Út af þér dey ég úr ástarsorg.

Eða kannski út af rækjusamlokunni sem ég borðaði.  
Hugrún
1985 - ...


Ljóð eftir Hugrúnu

Ást er bara majónes sem festist í hjartaæðunum