Þjóðarstolt
Of mikil fegurð,
of mikil orka,
of mikið stolt,
til að lýsa sé hægt
í örfáum línum.

Ég gæti skrifað þúsund ljóð
um litlu eyjuna sem kölluð er Ísland,
en aldrei yrði það nóg.
Nóg til að lýsa
landsins fegurð,
landsins orku
og stolti mínu fyrir það
að vera Íslendingur.  
Soffía
1993 - ...
Ég þurfti að gera þetta í skólanum og var fús til þess að lesa það upp fyrir skólann.


Ljóð eftir Soffíu

Þjóðarstolt