Alþingismenn 2007
Það er ekki mikið að marka
er margur þingmaður segir.
Frussast þeim fals úr barka
og flækja málin ógæfulegir.
Margir á mælskunni fljóta,
mergjaðar lygarnar spinna,
siðlausum skoltunum skjóta,
skrattann þá helst á minna.
Siðferði þeirra er allt annað
en almúgi fólks kýs að bera.
Verst að skuli vera bannað,
vesalmenni þessi að skera.
Þeir öldruðum útrýma vilja,
öryrkjann plaga sem hund,
en eiga erfitt með að skilja,
að ég meti þá á sömu lund.
er margur þingmaður segir.
Frussast þeim fals úr barka
og flækja málin ógæfulegir.
Margir á mælskunni fljóta,
mergjaðar lygarnar spinna,
siðlausum skoltunum skjóta,
skrattann þá helst á minna.
Siðferði þeirra er allt annað
en almúgi fólks kýs að bera.
Verst að skuli vera bannað,
vesalmenni þessi að skera.
Þeir öldruðum útrýma vilja,
öryrkjann plaga sem hund,
en eiga erfitt með að skilja,
að ég meti þá á sömu lund.