Partý?
Ég veð snjóinn upp að hnjám
og einmana ljósastaurar kalla á mig.
Bakkus eltir mig
og starir svörtum augum
á eymd mína,
ég öskra út í nóttina
að ég sé hvergi undir honum komin
en vindurinn kæfir óp mín.
Ég forðast snertingu hans
og finn hvernig skórnir
fyllast af snjó.
Hamslausar hugsanir hendast
með mér á meðan hjarta mitt
kvartar yfir kjarkleysi.
Líf mitt er stöðugt rifrildi
við sjálfa mig
um stráka sem þora engu
enda þori ég ekki sjálf.
Helvítis leigubílar koma
aldrei þegar ég þarf þá.

Þetta er allt þeim að kenna.  
Miriam Petra
1990 - ...


Ljóð eftir Miriam Petru

Kristín
mamma
Hlutverkaleikur
Kjallararottan
Það sem ég geri
pabbi
Partý?
Stelpurnar í dyrasímanum
Rigningarljóð
Stóllinn
Fiðringur
Á gervihnattaöld
Minningarbrot
Í almenningsvagni
Arnarfjörður
Þú og ég
Ævintýralega súr draumur
Sólin
Ástin í nördheimum
Hið fullkomna líf
16 km
Tölva.
Ís
Góðir tímar
Kæri jóli
Dimma dimma nótt
Aurora Borealis
Bifröst
Ljósið þitt
Tónaflóð
brotin
Litríkt
uppljómun
Fjallafaðmur
Reykjavík
vetur
Haustvísa
kók í gleri með röri
Morgunninn
frá Hadesarheimum
Enn ein djammsagan
Kleópatra
Kleópatra uncut
Bezt í heimi?
Kjötsúpa
hrafninn
janúar
ég á mér draum
Yndislegt
Skólaljóð
ljóðskáldið
Copacabana
heilluð
Grótta
Veðurfréttirnar
Túngata 23
í Skorradal
desembermyrkur
Nýársvísa
helfarir heimsins
Sumarmynd
Undir morgun