Draugur
Það er fullt tungl
tunglskinið læðist inn um gluggann minn
Ég ligg andvaka og horfi á þig
Þú situr andspænis mér og starir
þú starir á mig
Ertu til í alvörunni ?
eða er mig að dreyma ?
Andlit þitt svo hvítt
hvítt eins og fönnin sem féll í gær
Augu þín svo tóm
tilfinningalaus
Hendur þínar, beinaberar
teygja sig í átt að mér
Skuggi þinn dansar á veggjunum
er þú færist nær og nær
Aðeins þá fæ ég skilið
að þú ert ekki af þessum heimi
og þú fylgist með mér!
tunglskinið læðist inn um gluggann minn
Ég ligg andvaka og horfi á þig
Þú situr andspænis mér og starir
þú starir á mig
Ertu til í alvörunni ?
eða er mig að dreyma ?
Andlit þitt svo hvítt
hvítt eins og fönnin sem féll í gær
Augu þín svo tóm
tilfinningalaus
Hendur þínar, beinaberar
teygja sig í átt að mér
Skuggi þinn dansar á veggjunum
er þú færist nær og nær
Aðeins þá fæ ég skilið
að þú ert ekki af þessum heimi
og þú fylgist með mér!