Á gervihnattaöld
Gosflaskan starir á mig bláum tappa,
snakkið mig hughreystir,
ég ligg eins og klessa
og stari á lífið mygla niður.
Hvar er ungdómurinn sem ég pantaði í gær?
Hann átti að koma fyrir hádegi
en póstþjónustan hefur gefið sig
- það er of mikið álag.
Ég get pantað allt sem ég vil,
ég panta pizzu og finn mér vini
ég þarf bara username og einstaka password
samþykki þetta og samþykki hitt
kaupi föt frá ame-Rík-unni
og ýti á okey.
En hversvegna get ég ekki
pantað það sem allir þrá,
pantað það sem við öll þráum innst inni?
Hvar í anskotanum finn ég,
pantaðu-ást-punktur-com?
Eða þarf ég að finna hana sjálf?
snakkið mig hughreystir,
ég ligg eins og klessa
og stari á lífið mygla niður.
Hvar er ungdómurinn sem ég pantaði í gær?
Hann átti að koma fyrir hádegi
en póstþjónustan hefur gefið sig
- það er of mikið álag.
Ég get pantað allt sem ég vil,
ég panta pizzu og finn mér vini
ég þarf bara username og einstaka password
samþykki þetta og samþykki hitt
kaupi föt frá ame-Rík-unni
og ýti á okey.
En hversvegna get ég ekki
pantað það sem allir þrá,
pantað það sem við öll þráum innst inni?
Hvar í anskotanum finn ég,
pantaðu-ást-punktur-com?
Eða þarf ég að finna hana sjálf?