Söknuður
Ég sakna þess, þegar þú varst hjá mér
Og hélst svo um mig að mér fannst heimurinn snúast um ekkert annað en okkur.

Ég sakna þess að heyra ljúfa rödd þína segja „ég elska þig“
því ég vissi að þú gerðir það.

Ég sakna þess að sjá mynd af þér á símanum mínum
Sem á stóð „ég elska þig“

Og þessi mynd veitti mér huggun í hvert skipti sem ég leit á hana
Því það varst þú sem varst á henni.

Ég sakna þess að finna fiðringinn í maganum
þegar þú kysstir mig.

Núna hlusta ég daglega á lagið okkar, og mig langar mest til að gráta!
Því ég veit þú gerir það líka!

Í hvert skipti sem ég heyri nafn þitt finn ég fyrir söknuði,
Því ég veit að þú leynist einhversstaðar í því!

En þú vildir mig ekki lengur, þannig ég verð að sætta mig við það.
En, ég vil að þú vitir að ég elska þig ennþá <3..  
Birna
1993 - ...
..


Ljóð eftir Birnu

Söknuður
Kalt blóð
orkuleysi