ALLT ÞETTA LÍF
Allt þetta líf
snýst um veraldarvafstur.

Ég horfi á trén
þau hrista greinar sínar
eru ekki sammála.

Og ég sem yrki þetta
á bakhlið upplýsingabæklings
um húsbréf
segir þér að ég er skáld
með veraldarvafstrið
á herðunum.  
BJÖRG ELÍN FINNSDÓTTIR
1951 - ...


Ljóð eftir BJÖRGU ELÍNU FINNSDÓTTUR

Nótt
ALLT ÞETTA LÍF