Á valdastóli
Ingibjörg Sólrún sótti völdin fín,
Sjálfstæðinu var opinn lófi.
Græðgin mönnum glepur sýn,
ef gengur fram úr hófi.
Samfylking nú yfir glæpum gín,
getur ei lengur beytt þófi.
Alþingismaður er oftast svín,
eða þá skaðræðis bófi.
Aþingismaður er oftast flón,
sem eltir foringjann.
Finnur sig í að féfletta hjón,
og freta á dómarann.
Vesalmenni sem vinnur tjón,
og valtar yfir fátækann.
Það er ei sama með séra Jón
og sauðsvartan almúgann.
Sjálfstæðinu var opinn lófi.
Græðgin mönnum glepur sýn,
ef gengur fram úr hófi.
Samfylking nú yfir glæpum gín,
getur ei lengur beytt þófi.
Alþingismaður er oftast svín,
eða þá skaðræðis bófi.
Aþingismaður er oftast flón,
sem eltir foringjann.
Finnur sig í að féfletta hjón,
og freta á dómarann.
Vesalmenni sem vinnur tjón,
og valtar yfir fátækann.
Það er ei sama með séra Jón
og sauðsvartan almúgann.
Samfylkingin tók við af Framsókn til að ganga undir Sjálfstæðisflokknum með það að brjóta á öryrkjum með launatengingum við maka, þótt svo að Hæstiréttur Íslands hafi dæmt það vera siðleysi og mannréttindabrot. Þann 16. 8. 2007 sendi ég öllum Alþingismönnum bréf, sem ég lauk með þessu ljóði og sendi samrit til allra þingmanna. Það er þriðja bréfið sem ég stíla á Samfylkingarmenn um þessi málefni síðan þeir komust í stjórn án andssvara. Ekki hef ég heyrt þá eða aðra ræða þau í fjölmiðlum.