Sorg
Litlir englar
svífa
yfir þér
ég sé þá ekki
augun
eru
blinduð tárum

Reiðin umlykur mig
ég öskra
á þig
Guð
alla hina
brotna

Vantrúin truflar mig
lætur mér líða vel
eina stundina
þangað til
sannleikurinn
hellist
yfir mig
aftur

Ógrynni spurninga
brenna
á vörum mér
langar í svör
fæ þau ekki
óráðin gáta
endalaust

Ég mun muna þig
svo lengi
ég lifi
brosandi
hlæjandi
skiljandi
alltaf

Litlir englar
svífa yfir þér
ég sé þá
þerra tárin
og held áfram
í framtíðina
 
Gjóna
1982 - ...


Ljóð eftir Gjónu

Sorg