Álfamessa.
Falinn ég fann
hinn funheita eld.
Beið hann þar og brann
í brjóstinu um kveld.
Napurt var að nóttu
og nýfallin mjöll.
Þeir sáu mig og sóttu
í snæþakta höll.
Sóttu mig og sýndu
silfur gull og fé.
Buðu mér og brýndu
að bjargið væri vé.
Kuldalegur hreimur
hvíslaði þá.
Ást er annar heimur
er álfar ekki sjá.
hinn funheita eld.
Beið hann þar og brann
í brjóstinu um kveld.
Napurt var að nóttu
og nýfallin mjöll.
Þeir sáu mig og sóttu
í snæþakta höll.
Sóttu mig og sýndu
silfur gull og fé.
Buðu mér og brýndu
að bjargið væri vé.
Kuldalegur hreimur
hvíslaði þá.
Ást er annar heimur
er álfar ekki sjá.