Aðfangadagur.
Nú bráðum jólin birtast
í bjartri drottins dýrð.
Um hátíð englar hittast
í helgri næturkyrrð.
Í söngvum þeirra segir
að sonur Guðs sé hér.
Þótt hjálp þú enga eygir
er andi hans hjá þér.
Að bræðrum gefum gætur
og gleymdum þetta kvöld.
Og ástinni er grætur
á bak við gluggatjöld.
Þeir blessi brá er vakir
börn og móður tár.
Við treystum að þú takir
tregann burt og sár.
í bjartri drottins dýrð.
Um hátíð englar hittast
í helgri næturkyrrð.
Í söngvum þeirra segir
að sonur Guðs sé hér.
Þótt hjálp þú enga eygir
er andi hans hjá þér.
Að bræðrum gefum gætur
og gleymdum þetta kvöld.
Og ástinni er grætur
á bak við gluggatjöld.
Þeir blessi brá er vakir
börn og móður tár.
Við treystum að þú takir
tregann burt og sár.