jólasveinar í morgunsárið
Dyrabjallan hringdi í Fjólugötunni
klukkan níu í morgun og Magga hrópaði
jólasveinarnir jólasveinarnir
pabbi komdu með myndavélina
hún sagði nafna að opna fyrir þeim
reif Hreiðar Loga upp úr draumheimunum
við hlupum til dyra af annarri hæð
og öll á brókunum
og þarna stóðu þeir á dyra tröppunum
í skrautlegum jólabúningunum
með stóra pakka
sem þeir réttu drengjunum
Magga bað þá að segja hvað þeir hétu
Bjúgnakrækir
sagði mjóróma rödd
Kertasníkir sagði önnur miklu dýpri
Einar stattu hjá þeim sagði Magga
við nafna og stillti sér upp með Hreiðar
það kom blossi af nýju myndavélinni
sem Bjarni minn færði mér frá Amiríku
klukkan níu í morgun og Magga hrópaði
jólasveinarnir jólasveinarnir
pabbi komdu með myndavélina
hún sagði nafna að opna fyrir þeim
reif Hreiðar Loga upp úr draumheimunum
við hlupum til dyra af annarri hæð
og öll á brókunum
og þarna stóðu þeir á dyra tröppunum
í skrautlegum jólabúningunum
með stóra pakka
sem þeir réttu drengjunum
Magga bað þá að segja hvað þeir hétu
Bjúgnakrækir
sagði mjóróma rödd
Kertasníkir sagði önnur miklu dýpri
Einar stattu hjá þeim sagði Magga
við nafna og stillti sér upp með Hreiðar
það kom blossi af nýju myndavélinni
sem Bjarni minn færði mér frá Amiríku
Dagbókarfærsla 24. des. 2007