Vetur
Þrjú lítil börn
liggja á gangstétt
og búa til snjóengla
Þau ímynda sér að þau séu englar á himnum
fljúgandi innan um snjókornin.

Bíll rennur í hálku,
snjórinn fær rauðan blæ
og börnin þurfa ekki að ímynda sér lengur  
Sigurður Freyr
1989 - ...


Ljóð eftir Sigurð Frey

Kona í kápu
Samviskuþvottur
Ísland í dag
Normið
Vetur