Ég er
Ég spyr þig hver þú ert
hver þú heldur að þú sért.
Ekkert svar..
Enginn þar..
Utan - eigið andlit bert
(brotin liggja alsstaðar)

Ég spyr þig hve mörg tár
hafa saltað öll þín sár.
Þung er brá..
Svarar þá..
\"Engin fallið þetta ár\"
(veröldin var svört og grá)

Fyrnd að baki fortíð sú
sem felldi barnsins von og trú.
En ég er til..
Og nú ég skil -
Að framtíðin er ég og þú.
(Eða helmingurinn um það bil)  
Guðmundur Ágúst Ólafsson
1975 - ...


Ljóð eftir Guðmund

Ég er