Treblinka.
Mamma af hverju viltu ekki svara
erum við á leið til ömmu og afa
af hverju er niðdimm nótt
af hverju er þér svona ótt
hver á þessar byssur sem bera
blikandi stingi sem skera
verðum við dáin er sólin skín
\" Þú ferð bráðum heim til þín \"
Er stríð til á stjörnunum
eru sorgir þar hjá börnunum
af hverju fer pabbi aðra leið en við
af hverju er þessi langa röð og bið ?
af hverju fórum við en ekki hinir
eru þau ekki líka dætur og synir
hvað þýðir “Arbeit macht Er Frei “
af hverju er ég nakin hér í maí ?
Af hverju er stríð á milli manna
má ég aldrei vita hið sanna.
Er heimurinn grafin í grjót og mold
fer grimmdin inn í blóð og hold
telja englar sporin okkar
eru þetta hár og lokkar
allir horfa en enginn sér
ó Guð minn því ertu ekki hér ?
erum við á leið til ömmu og afa
af hverju er niðdimm nótt
af hverju er þér svona ótt
hver á þessar byssur sem bera
blikandi stingi sem skera
verðum við dáin er sólin skín
\" Þú ferð bráðum heim til þín \"
Er stríð til á stjörnunum
eru sorgir þar hjá börnunum
af hverju fer pabbi aðra leið en við
af hverju er þessi langa röð og bið ?
af hverju fórum við en ekki hinir
eru þau ekki líka dætur og synir
hvað þýðir “Arbeit macht Er Frei “
af hverju er ég nakin hér í maí ?
Af hverju er stríð á milli manna
má ég aldrei vita hið sanna.
Er heimurinn grafin í grjót og mold
fer grimmdin inn í blóð og hold
telja englar sporin okkar
eru þetta hár og lokkar
allir horfa en enginn sér
ó Guð minn því ertu ekki hér ?