Augnablikið
Saman við göngum
tvö ein
úr smiðju hjartans
í gegn um drauminn,
eitt örstutt
augnablik.


Áin flæðir
yfir bakka sína
líkt og hendur
að faðma heiminn,
eitt örstutt
augnablik.


Lukt augun
byrgja mér sýn.
Eins mun nóttin
svæfa drauminn,
eftir örstutt
augnablik.
 
Hulda Dagmar
1974 - ...


Ljóð eftir Huldu Dagmar

Dætur Lífsins
Augnablikið